..................FRÉTTIR ...... STUNDASKRÁ ...... UM DANSNÁM ...... KENNARAR....... MYNDIR ...... VIDEO ...... SKRÁNING ......DANSFATNAÐUR

NÁNAR UM DANS BRYNJU PÉTURS
Við kennum í Árbæ, Breiðholti, Laugardal (opnar haust 2014) og Hafnarfirði!
Lærðu Hiphop, Dancehall, Waacking, Break, Popping, House ofl.


Almennt:

Ef þú vilt Street dans á Íslandi þá er þetta staðurinn. Við erum eini sérhæfði Street dansskólinn
á landinu með dansstíla sem eru hvergi kenndir annarsstaðar og reyndustu Street danskennara
landsins um borð. Hér er áratuga reynsla og mikil ástríða fyrir dansinum og menningunni. Við
viljum gefa dönsurunum okkar allt það besta. Þú getur dansað 1x - 6x í viku.

Veldu þér dansnám sem kemur þér lengra.

Við bjóðum upp á metnaðarfullt dansnám og fjölbreytta dansstíla. Í hverjum tíma er farið í grunn-
spor / tækni / musicality æfingar og flotta dansrútínu. Hér lærir þú Hiphop, Dancehall, Break,
Waacking, House, Popping
ofl. Þetta eru stílarnir sem hafa mótað atvinnudansara sem í dag
dansa með Beyoncé, Ciara, Rihanna, Justin Bieber, Lady Gaga, Usher, Nicki Minaj, Chris Brown ofl.
Street dansstílarnir eru vinsælustu dansform síðari ára á heimsvísu.

Við leggjum áherslu á jákvætt og stuðningsríkt umhverfi fyrir dansarana okkar. Street dans
er menning og innan danssenunnar er mikil samstaða. Hér ertu partur af fjölskyldu.

Annarskipulag:
Vorönn er frá janúar - apríl og haustönn er frá september - desember, hver önn er 12 vikur.
Við fögnum hverri önn með nemendasýningu þar sem dansararnir okkar koma fram og við
eigum saman frábæran dag með skemmtilegasta fólkinu.

Dugnaðarverðlaun Adidas
Þrír metnaðarfullir nemendur verða valdir á Nemendasýningunum í vor og haust 2014. Þau fá að
gjöf fatnað að eigin vali frá Adidas í Kringlunni, þau velja sér skó, peysu, buxur og bol. Við viljum
verðlauna dugnað í tímum og jákvætt viðhorf - sem smitar alltaf út frá sér!

Sjálfsstyrkingarnámskeið - á hverri önn ef styrkveiting fæst.
með Kristínu Tómasar, höfundi fræðslubókanna Stelpur! ofl. Þar munu dansararnir okkar t.d. læra
um sína eigin sjálfsmynd og hvað við getum gert til þess að halda sjálfsmyndinni okkar jákvæðri.
Mikilvægt veganesti og ókeypis fyrir nemendur Dans Brynju Péturs.

Danskeppni
skólans er í febrúar

Allir dansararnir okkar eru hvattir til að taka þátt í einstaklings 'battles' og / eða hópaflokki. Ekkert þátttökugjald og mikil reynsla fyrir alla.

Regluleg danspartý
(JAM SESSIONS)

Opið dansgólf, góð tónlist og frábær félags-skapur! Ókeypis inn, foreldrar og systkini velkomin. Þetta er hjarta street dansins.

STREET DANS EINVÍGIÐ
er í október

Eina danskeppni sinnar tegundar á Íslandi opin öllum street dönsurum landsins á framhaldsstigi. Vikan fyrir keppnina er frívika en nemendur geta komið í sérhannaða og vandaða dagskrá.

Erlendir gestakennarar
á heimsmælikvarða


Við fáum reglulega í heimsókn erlenda dans-kennara á heimsmælikvarða. Hér er Brynja með Buddha Stretch (RVK okt '13), danshöfundi Michael Jackson og frumkvöðli í hiphop dansi.


Sjáðu alla Street dansstíla sem kenndir eru við skólann:

UPPBYGGING DANSNÁMS
METNAÐARFULLT STREET DANSNÁM
Áherslan er tvenns konar: FOUNDATION s.s. grunnspor, tækni og 'drills' eða grunnæfingar. Það
mikilvægasta sem hver og einn Street dansari býr yfir er góð þekking á stílunum og grunni þeirra.
Við þurfum strúktúr til þess að skilja og dansa stílana. Nemendur læra um söguna og menninguna
til að fá heildarmynd af viðkomandi stíl. Svo er það CHOREOGRAPHY (Dansrútínur) þar sem við
setjum sporin og grunnatriðin í samhengi og brjótum þau upp. Þannig lærum við nýjar áherslur
og hvert er hægt að fara með dansstílana.

Rétt nálgun á street dansstílunum kemur með reynslunni, það skiptir máli að hlusta á tónlistina
og skilja tenginguna á milli líkamstjáningar og taktsins. Því eldri sem hóparnir eru því meiri upp-
lýsingar fá þau og kröfurnar verða meiri til nemandans. Einstaklingurinn er ómetanlegur í street
dansmenningunni, dansarar reyna að finna sínar eigin leiðir til að vekja athygli og skera sig úr
hópnum. En til þess að fara út úr kassanum þarf að læra grunninn vel.

Erlendir gestakennarar sem hafa kennt hjá okkur:
Buddha Stretch (US)
haustið 2013, Hurrikane (US) haustið 2012, Android (US) haustið 2012,
Anton Borgström (SE)
vorið 2013, Martine Ibsen (DK) haustið 2011 og von er á fleirum.

NEMENDASÝNINGAR
Við setjum upp nemendasýningar í lok bæði vor- og haustanna. Hér er aðalatriðið að dansararnir
okkar skemmti sér vel og fái að fagna þeim áfanga að hafa klárað innihaldsríka dansönn. Mörg
þeirra eru að koma fram í fyrsta sinn og við leggjum áherslu á að andrúmsloftið sé afslappað en
reglusamt. Þetta eru skemmtilegustu dagar ársins og við hlökkum alltaf til næstu sýningar :)

Nemendur greiða 1.500 kr. fyrir Boogie Down Reykjavík bol, sem þau svo eiga.
Áhorfendur greiða 1.500 kr. fyrir aðgöngumiða / Börn yngri en 12 ára koma ókeypis.


.

DANSHÓPAR
Danshópur Brynju Péturs hefur verið lifandi síðan 2004, þar eru bestu nemendurnir hverju
sinni úr framhaldshópnum hennar Brynju ásamt kennurum. Þetta er hópurinn sem tekur þátt í
stærstu viðburðunum. Árið 2012 stofnuðum við Yngri Street Danshópinn en þar eru metnaðar-
fullir nemendur úr hópunum 12-15 ára og 16-19 ára. Þau hafa alltaf sitt eigið atriði á nemenda-
sýningum ásamt því að taka þátt í hinum ýmsu verkefnum.

22
Yngri danshópurinn æfir stíft í 3 hverfum. Hér sérðu fjölbreytnina, stelpurnar til vinstri dansa Waacking
og restin blöndu af Hiphop, Popping ofl. Alla stílana finnurðu í 13-15 ára hópunum.

JAM SESSIONS
Besta leiðin til að æfa okkur! Við hittumst einstaka laugardaga kl. 16-19. Við spilum tónlist og
dönsum! Hver og einn ber ábyrgð á sínum áherslum / æfingum, og oft er farið út í Social dansa
þar sem allir geta tekið þátt. Kennarar verða á staðnum og geta
svarað spurningum, farið yfir
það sem þið viljið ofl.

Kíktu á Viðburðir til að sjá hvenær næsta Jam session er!
0 kr. inn


FYRIR ALLA NEMENDUR SKÓLANS: DANSKEPPNI BRYNJU PÉTURS
Aðeins fyrir dansara innan skólans okkar, byrjendur og lengra komna. Með þessum viðburði
viljum við sýna dönsurunum okkar að þau geta náð lengra og komist nær markmiðum sínum ef
þau leggja auka tíma og vinnu í að komast þangað. Keppt er í tveimur flokkum:

1. Hópatriði.

Dansarar semja dansinn, velja tónlist, ákveða fatnað og sjá um allt sem við kemur atriðinu sjálf.
Þið þurfið að ákveða nafn á hópinn og taka fram hvaða dansstíl/a þið vinnið með í atriðinu.

Aldursflokkar:
10 - 12 ára

13 - 15 ára
16 ára +

2. Einstaklings battl fyrir 13 ára +. (eins og í Street Dans Einvíginu)
Dansarar battla einn á móti einum í þeim stíl sem þau kjósa sjálf. Þessi flokkur undirbýr dansara
fyrir þátttöku í Street Dans Einvíginu. Nánar um það hér fyrir neðan. Æskilegt er að þátttakendur
hafi verið í eina önn eða lengur í dansnámi við skólann og séu vön því að 'freestæla' innan þess
stíls sem þau velja sér.


Almennt um keppnina.
Dómarar leita eftir að dansarar þekki grunnatriði stílanna og framkvæmi þau eftir bestu getu.
Dansarar eiga að leggja áherslu á persónulegan stíl og skilning á tónlistinni.

Keppnin er haldin árlega í febrúar.
Skráningargjald: 500 kr.
Aðgangseyrir fyrir áhorfendur: 0 kr.

FYRIR DANSARA Á FRAMHALDSSTIGI: STREET DANS EINVÍGIÐ
Við stöndum fyrir Street Dans Einvíginu sem er árlegur viðburður. Þar er battlað (keppt) í öllum
þeim Street stílum sem iðkaðir eru á Íslandi. Dansarar mæta einn á móti einum og styðjast við
það sem þau hafa lært og þróað sjálf. Þar er líka hópaflokkur. Þetta er fyrsta danskeppni sinnar
tegundar á Íslandi og eru þátttakendur ekki einskorðaðir við skólann, allir dansarar á landinu eru
velkomnir. Við hvetjum alla okkar nemendur til að setja sér það markmið að taka þátt í battlinu.
Mætið í opna tíma, lærið hjá erlendu gestakennurunum og komið í Jam Sessions til að æfa!


Keppnin er haldin árlega í október.
Skráningargjald: 1.000 kr.
Aðgangseyrir fyrir áhorfendur: 1.500 kr.



DANSSTÍLAR
SCROLLAÐU NIÐUR TIL AÐ LESA OG SJÁ DÆMI UM ALLA DANSSTÍLANA

HIPHOP

Þú lærir sporin sem hafa mótað og þróað HIPHOP stílinn síðan á 9. áratugnum (1980's) til dagsins
í dag (”old school - new school”). Hiphop er fyrst og fremst 'a party dance', þ.e.a.s. stíllinn verður
til þegar fólk var að koma saman á klúbbum og skemmta sér/dansa við hiphop tónlist. Sporin sem
við lærum hafa oft skemmtilega sögu og oft er verið að minnast sérstakra karaktera innan hiphop
menningarinnar. Það hefur verið ákveðin gelding í gangi útum allan heim þar sem hiphop stílnum
hefur ekki verið gerð góð skil - þ.e. fólk hefur verið að auglýsa danstíma sem hiphop en eru í raun
með jazz / commercial dans við hiphop tónlist.

Í þessum tímum lærir þú sporin (the social dances of hiphop / "the party dances") og heyrir lögin
sem sporin eru gerð við. Þú kynnist sögunni og við förum einnig í grunnatriði Waving og Popping
tækninnar í eldri hópunum. Það er frábært veganesti fyrir Hiphop dansara, og sérstaklega til að

víkka sjóndeildarhringinn fyrir þinn eigin stíl. (fyrir byrjendur í Waving og Popping).

Dæmi:
.

DANCEHALL Eini staðurinn á Íslandi með Dancehall!
Dancehall er orðið mjög vinsælt meðal þeirra sem koma í tíma. Stíllinn byrjar að mótast á 9. ára-
tugnum, þegar 'reggae tónlist' verður að meiri 'partý tónlist' m.a. vegna áhrifa hiphops frá Banda-
ríkjunum. Dancehall fær einmitt nafnið því tónlistin var spiluð í 'the dancehalls' eða klúbbum þar
sem fólk hittist til að skemmta sér og dansa saman. Þú færð karabískan fíling með hreyfingum og
sporum frá Jamaica. Þetta er lifandi og frumlegur stíll sem er alltaf að bæta við sig nýjum dönsum
við viss lög, sem er einkennandi fyrir stílinn. Þykkur bassinn og seiðandi takturinn í lögunum gerir
það auðvelt og skemmtilegt að dansa þennan stíl. Við fylgjumst með nýjum dönsum og tökum
reglulega 'throwback' tíma þar sem old school dansarnir eru rifjaðir upp. Þú lærir um söguna og
helstu dansara stílsins.

Mjaðmahreyfingarnar eru áberandi, þú lærir "the wine" sem er einangrunartækni eða "isolations"
mjaðma og brjóstkassa. Tæknin er lykillinn! Wining nýtist okkur vel í öðrum stílum, t.d. í waving.

Dæmi:
.

WAACKING Eini staðurinn á Íslandi með Waacking!
Uppruni Waacking er í gay klúbbum vesturstrandar Bandaríkjanna á 8. áratugnum. Stíllinn varð til
undir áhrifum diskó tónlistar og fyrstu dansarar stílsins voru 'queens'. Innblástur stílsins kemur frá
'gömlu Hollywood myndunum' (40's, 50's og 60's) og leikkonum þessa tímabils. Sensual, elegant,
feminine. Waacking er að verða mjög vinsæll út í heimi. Við förum í "drills" í byrjun tímanna þar
sem við lærum og æfum handahreyfingarnar okkar. Þú lærir foundation og kynnist sögunni, einnig
æfum við okkur í að túlka taktinn og tilfinningu í lögunum. Because its all about performance. Í
hverjum tíma förum við svo í flotta dansrútínu.

Dýnamískar handahreyfingar, pósur og fierce framkoma eru element sem einkenna stílinn. Súper
kvenlegur, þú getur verið hver sem þú vilt innan Waacking stílsins.

Dæmi:
.

BREAK
Break dansinn verður til í byrjun 8. áratugarins, en þá fer Hiphop menningin að verða til í Bronx
hverfi New York borgar. Önnur element kúltúrsins eru Rapp, Graffiti, DJ'ing, talmáti, tíska ofl.
Break eða BBoying er því fyrsti dansinn sem kemur frá Hiphop menningunni. Dansararnir tóku
yfir dansgólfið þegar 'dansbreakin' í Funk lögunum komu, og DJ'ar á þeim tíma lengdu þessi
'break' í lögunum til að hafa dansarana á gólfinu lengur. En þaðan kemur nafnið 'Break boys /
girls' / Bboys / Bgirls.Partýin voru úti á götu og seinna meir inni á klúbbum.

Þú lærir Top Rock sem er grunnhreyfing Breakarans, en þannig sýna dansarar áhorfendum að
þeir skilji og geti dansað við taktinn. Svo er farið niður á jörðina sem er einkenni dansins, þar
er byggt upp styrk og lært góða grunntækni. Með tímanum er farið í flóknari og meira krefjandi
æfingar.

55
Strákar fá að vera strákar í Break tímunum hennar Natöshu!
Strákar eru líka velkomir í alla Hiphop, Popping og House tíma. Þar eru bæði kynin jafnvíg :)

HOUSE
House verður til á sama tíma og sama stað og Hiphop dansinn. Báðir stílarnir rekja rætur sínar
til klúbbamenningarinnar í New York á miðjum 9. áratugnum. Dansarar þessa tímabils eru oft
jafnvígir í báðum dansstílum. House stíllinn einkennist af hugmynd um það að allir séu velkomnir
í 'þetta hús', undir 'þessu þaki' finnast áhrif frá Hiphop, Salsa, Top Rock, Hustle og fleiri social
dönsum. House er einn vinsælasti street dansstíllinn og er iðkaður af flestallri eldri kynslóðinni,
því það er eins og vöxtur dansarans sé endalaus innan stílsins. Groove House stílsins er einstakt.

Í tímunum er farið í grunnspor stílsins og Groove'ið sem kallast Jacking, nemendur kynnast einnig
Lofting sem gert er á gólfinu. Þar eru hægari hreyfingar sem koma til móts við taktföst og hröð
spor sem gerð eru standandi. Dansarar fara oft í House tíma til að æfa upp 'footwork' því sam-
setningar sporana eru mjög áhugaverðar og gefur öllum dönsurum mikið boozt í taktfestu.

POPPING Eini staðurinn á Íslandi með Popping!
Uppruni dansstílsins er í Californíu í byrjun 8. áratugarins og nafn stílsins kemur frá Boogaloo Sam
sem er frumkvöðull í Popping. Hann leiddi danshópinn sinn The Electric Boogaloos í sjónvarpsþáttinn
Soul Train og var það í fyrsta sinn sem stíllinn sást í sjónvarpi 1978.

Undirstílar Popping eru m.a. Waving, Robot, Electric Boogaloo, Tutting, Strobing, Animation, Ticking
ofl. Funk tónlist er áhrifavaldur dansstílsins og dansarar leitast eftir því að hafa groove samhliða
því að hafa mikla stjórn á einangrunum líkamans og vöðvum. Það hafði mikil áhrif á dansara að
sjá Electric Boogaloos á Soul Train og uppfrá því hófst tímabil þar sem dansarar í New York
hermdu eftir hreyfingum sem þeir sáu í sjónvarpinu án þess að kunna rétta tækni / orðaforða.
Það hafði áhrif á byrjun Hiphop stílsins m.a. og elsta kynslóð Hiphop dansara í dag (t.d. Buddha
Stretch) leggur áherslu á að dansarar kunni undirstöðu í Popping.

Í tímunum er farið í undirstöður Popping tækninnar, nemendur læra að stjórna vöðvunum rétt í
höndum og fótum og hvernig við forðumst meiðsli. Við lærum undirstöðu í Waving og hvernig við
nýtum báða stíla til að bæta við okkar eigin túlkun. Mikil dínamík sem bætist við dansinn okkar
þegar Popping verður hluti af vopnabúrinu.

'HEELS PERFORMANCE' (FYRIR 18 ÁRA +)
Komdu með hæla og attitude, þessir tímar munu gera vikuna þína. Choreography, Runway, Posing,
Twerking ofl. í stórskemmtilegri fusion sem bætir og kætir!


Þetta er ekki nafn á dansstíl heldur einfaldlega heiti á danstímum sem Brynja hefur verið að þróa
í framhaldstímunum. Þessir tímar eru orðnir það vinsælir að þeir þurfa sinn eigin tíma í stundaskrá!
Hér erum við að skoða ýmis consept í choreografíu og förum alla leið í kvenleika og túlkun.


.

"COMMERCIAL CHOREOGRAPHY"
Persónuleg túlkun danshöfundar.
Commercial choreography er gælunafn yfir frjálsa túlkun danshöfundar, þessi nálgun er þróuð í dans-
stúdíói (s.s. ekki á klúbbunum eins og Street dansstílarnir). Þannig er auðvelt að aðskilja Hiphop eða
aðra Street dansstíla og persónulega túlkun fólks því oft eru Commercial danstímar ranglega merktir
sem Hiphop eða 'Street'. Mikilvægt er að skilningur dansnemenda á fjölbreytileika dansstílanna skerðist
ekki. *Þú þarft alltaf að læra grunn stílanna til að geta túlkað áhrif frá Street dansstílum rétt!

Í þessum tímum verður áherslan á dansrútínu (choreography), við einbeitum okkur að því að túlka
valin lög og fínpússum tímasetningar. Þið fáið upplýsingar um hvaðan áhrifin koma, ef ég er með beina
tengingu í sérstakan dansstíl.

Dæmi:
.

ALDUR OG GETUSTIG
4-6 ÁRA : einu sinni í viku
Yngstu dansararnir okkar læra með leik og dansi að túlka ýmis hlutverk sem hjálpa þeim að tengja
líkamstjáningu við tónlist. Þau fara í leiki og gera einfaldar dansæfingar í skemmtilegu umhverfi
þar sem þau fá góða útrás fyrir hreyfiþörfina.

7-9 ÁRA : einu sinni / tvisvar í viku
Nemendur kynnast grunnhreyfingum og hvernig við dönsum í takt við tónlistina. Þau læra einfaldar
og skemmtilegar rútínur og spor sem auka samhæfingu líkamans. Einstaka sinnum er farið í leiki
en aðaláherslan er alltaf á dansinum. Frábærir tímar fyrir litlu dansarana okkar og vel er haldið utan
um hópinn.

10-12 ÁRA : tvisvar í viku
Hérna er farið betur í sporin, þau læra grunnhreyfingar í Hiphopi og meiri áhersla er á groove og
túlkun hreyfinganna. Það er alltaf mikið fjör í þessum tímum og krökkunum er gefið gott veganesti
til að halda áfram á sinni leið í Street dansi. Þau læra nöfnin á sporunum og fá frekari upplýsingar
um viðkomandi dansstíl.

13-15 ÁRA : tvisvar í viku
Þessir hópar kynnast erfiðari sporum innan stílanna og fá enn meiri áskoranir frá kennurunum
sínum. Þau fá tækifæri til að læra fleiri stíla innan Street dansheimsins, t.d. grunntækni í Popping,
Waving og hópurinn getur farið í kynningartíma í Hiphop, Dancehall, Waacking, House og Break.

16 ÁRA OG ELDRI - BYRJENDATÍMAR : tvisvar í viku
Góðir og krefjandi tímar fyrir byrjendur, einnig fyrir dansara sem vilja ná betra taki á tækninni og
sporunum. Skemmtilegir tímar þar sem farið er vel í grunnspor og hreyfingar. Kennd er tækni sem
nýtist vel til þess að auka samhæfingu líkamans og skilning á hreyfingunum. Vinalegt andrúmsloft
og pínkulítið af blaðri og djókum :) Það eina sem þarf er áhugi, þægileg föt og vatnsbrúsi and you're
good to go! Sjáumst í danstíma!

18 ÁRA OG ELDRI - FRAMHALDSTÍMAR : tvisvar í viku
Pakkfullir af orku og frábærri stemmningu, hér er reynt á! Brjálæðislega mikið af góðri tónlist og
skemmtilegum sporum. Í þessum tímum eru áhugasamir dansarar, þess vegna er mikið um fræðslu
og flóknari æfingar sem krefjast meiri einbeitingu og áræðni. Dansrútínan í þessum tímum er alltaf
sérstaklega kröftug og funky. Vanir dansarar sérstaklega velkomnir! Its all love!

16 ÁRA OG ELDRI - 'ALL LEVELS' TÍMAR : tvisvar í viku
Tímar fyrir þá sem hafa smá bakgrunn og vilja hraðari yfirferð, einnig byrjendur sem vilja mikið fjör.
Hér eru rútínurnar meira krefjandi en í byrjendatímum og góð yfirferð í grunnatriðum. Oft eru dans-
þyrstir æstir í krefjandi rútínu en hafa kannski ekki grunn í þessum stílum. Hér er hraðinn og stuðið
í challenging dansrútínum ásamt foundation sporum, æfingum, tækni - allt sem hjálpar ykkur áleiðis
að skilja stílana og geta túlkað þá rétt.



STAÐSETNINGAR

1. UM DANSNÁM

2. DANSHÓPAR

3. DANSKEPPNIR

4. DANSSTÍLAR

5. ALDURSHÓPAR

6. STAÐSETNINGAR

7. HVAÐ ER STREET DANS ? SPURNINGAR OG SVÖR.

8. ENGLISH VERSION