HAUSTÖNN 2026 31. ÁGÚST - 4. DESEMBER
SKRÁNING HEFST 24. JÚNÍ Haustönn er 14 dansandi vikur á öllum 9 staðsetningum.
Fyrsta vikan er ókeypis prufuvika. Ekki þarf að skrá í prufu, bara mæta.
Hvar dansa aldurshóparnir? 5-6 ára: Kennt í Breiðholti, Laugardal, Kópavogi, Grafarvogi, Hafnarfirði og á Seltjarnarnesi. 7-9 ára: Kennt á öllum staðsetningum. 10-12 ára: Kennt á öllum staðsetningum. 13 ára +: Kennt á öllum staðsetningum nema í Árbæ. 16 ára +: Kennt í ÍR Heimilinu, Laugardal, Kópavogi og Garðabæ. 20 ára +: Kennt í Laugardal. Framhaldstímar: Kennt í ÍR Heimilinu. 25 / 30 ára + hádegistímar: Tilkynnt á instagram.
Já, hægt er að æfa í fleiri en einu hverfi ef viðkomandi vill dansa oftar í viku.
Staðsetningar í boði: Breiðholt (ÍR Heimilið, Skógarseli 12 og Gerðuberg), Laugardalur (Hús Hjálpræðishersins, Suðurlandsbraut 72), Árbær (Fylkissel, Norðlingabraut 12), Garðabær (Sjálandsskóli), Kópavogur (Kórinn, Vallakór 12-14), Grafarvogur (Íþróttahús Grafarvogs í Dalhúsum), Hafnarfjörður (Íþróttahúsið við Strandgötu),
og Seltjarnarnes (Íþróttahús Gróttu við Suðurströnd)
Verðskrá er að finna undir Skráning.
Scrollaðu niður þessa síðu til að sjá stundaskrá.
ATH: Mikilvægt! Getustig: Byrjendur - 0-2 ára reynsla í viðkomandi aldursbili og dansstíl Miðstig - 3 ára + reynsla í viðkomandi aldursbili og dansstíl Framhald - 5-8 ára + reynsla í viðkomandi aldursbili (Nemendur með gott vald á grunn og tækni í viðkomandi dansstíl) All levels - Hentar byrjendum og miðstigi, lengra komnum verður boðið í miðstigs- eða framhaldshópa *Höfum í huga að þessi listi er viðmið, hver einstaklingur fer á sínum hraða
ATH! Kennarar munu færa nemendur til um getustig ef annað stig
hentar viðkomandi. Skráning í framhaldshópa er háð samþykki kennara.
*Við gefum okkur 3 vikur í byrjun annar til að skoða og staðfesta miðstigs- og framhaldshópana.
Dansstílar Allir þessir stílar tilheyra street dansmenningunni | vinsælustu dansform síðari ára á heimsvísu
Hiphop - Beint frá New York! Lærðu réttan grunn og tækni í stílnum sem breytti öllu. Dancehall - Frá Jamaica! Mikið groove og 'isolations' tækni, partý dansar og lifandi menning. Waacking - Stíllinn snýst um performance! Lærðu inn á tónlistina og stækkaðu túlkun þína. Popping - Vöðvastjórn, einangranir og nákvæm tækni. Popping er leynivopn street dansarans. Break - Fyrsti dansstíllinn sem kom frá Hiphop menningunni, gólfvinna og sjálfstæði. House - Beint frá klúbbunum! Ávanabindandi taktur, mikið groove og áskorun í fótavinnu. Top Rock - Stíllinn er partur af Break stílnum (B-Boying), gert standandi - mikið groove, mikið funk. Locking - Dansað við funk tónlist, frábært groove sem styrkir alla dansara og mikil gleði.
Choreografíutímar Í þessum tímum er ekki kenndur dansgrunnur, áherslan er á persónulegri túlkun danshöfundar 'Choreo' - Þú þekkir dansarana okkar, komdu í 'Choreo' tíma til uppáhalds dansaranna þinna. 'Heels Performance' - Kvenlegir og fierce ekta skvísutímar sem má gera í hælum eða sneakers. 'Partýtímar' - Tímar sem henta ÖLLUM! Einfaldar og skemmtilegar dansrútínur með ýmsum áhrifum.
BREIÐHOLT ÍR HEIMILIÐ, SKÓGARSELI 12
Danssalurinn er ekki í nýju byggingunni, heldur í eldra húsinu til vinstri.
Gengið er inn um aðalinngang, við dönsum á efri hæð.