....,.FRÉTTIR ...... STUNDASKRÁ ...... UM DANSNÁM ...... KENNARAR....... SOCIAL MEDIA ...... VIDEO ...... SKRÁNING ......DANSFATNAÐUR


2018
____________________________________________________________________________

NEMENDASÝNINGARNAR VORU ALGJÖRT PARTÝ!
Takk fyrir enn einn ógleymanlegan dag saman!

Þetta er alltaf sama tilfinningin, hversu klikkað er það að við séum komin með allt þetta batterí og
allt þetta flotta fólk í kringum okkur? Yfir 500 dansarar fóru á svið og skiptum við þeim á tvær sýningar.
Við bætum við heilli stúku inn í Seljaskólann en við höfum fyllt húsið á öllum sýningum síðastliðin ár.

Hér er allt myndefni:
Myndir eru komnar á facebook: Dans Brynju Péturs
Video eru komin á youtube: Dans Brynju Péturs


.

.

.


______________________________________________________


STREET DANS EINVÍGIÐ 28. OKT - 1. NÓV
STÆRSTI STREET DANS VIÐBURÐUR ÁRSINS

Umfjallanir um danshátíðina birtust í fréttum á Stöð 2 og RÚV:


Chrybaby Cozie frá New York kenndi Lite Feet, sem er dansstíll innan Hiphop menningarinnar:


Myndir frá aðalkvöldinu, Street dans Einvíginu sjálfu þann 1. nóvember:

.
.

______________________________________________________

FYLGSTU MEÐ STARFINU OKKAR Á INSTAGRAM
Followaðu dansskólann á @dansbrynjupeturs !

Við póstum videoum úr danstímum daglega og setjum reglulega í story!
Þetta er besta leiðin til að sjá hvað við erum öll að bardúsa.


______________________________________________________


Nemendasýningarnar okkar í apríl, svona kláruðum við vorönn 2018!


______________________________________________________

TAKK FYRIR ÆÐISLEGA DANSÖNN!
Nemendasýningar Dans Brynju Péturs voru haldnar 14. apríl í Kaplakrika.
Frábær dagur. Þið eruð stórkostleg! Það er alltaf jafn gaman og skemmtilegra en síðast að búa
til þessa ógleymanlegu daga með ykkur. Takk fyrir að vera með!

Sjá myndir á facebook og video á youtube!
Við minnum á instagramið okkar: dansbrynjupeturs :)

.

.

.


______________________________________________________

WORKSHOP MEÐ DÖNSURUM FRÁ NEW YORK OG NOREGI
VAR HALDIÐ HELGINA 24.-25. MARS
Korie Genius kennir vinsælustu Dancehall tímana í New York,
hann fyllir tíma 2-3x í viku í stærstu dansstúdíóum borgarinnar, Broadway Dance Center og Peridance!

Stew (Leftside Crew) er mikilsvirtur DJ og Popping dansari frá Noregi,
hann vann Juste Debout Nordic Prelims og var að stíga af the main stage í París! Sérþekking: Boogaloo.


Frábær orka og æðislegir danstímar með tveimur ferskum kennurum. Mikil ánægja meðal dansaranna okkar.
Takk fyrir æðislega helgi!

.
.

______________________________________________________

DANSKEPPNIN SÚPER FLOTT Í ÁR
Árlega innanhúss danskeppnin okkar fór fram 10. mars í Tjarnarbíó.

Takk fyrir frábæran dag! Það eru forréttindi að fá að sjá ykkur styrkjast og stækka ❤️
Þessi yndislegi vafningur sem á sér stað á milli kynslóða er orðinn að aðalatriðinu í öllu okkar starfi.
Þið standið svo fallega með hvert öðru, hvort sem þið eruð að dæma, taka þátt, með umsjón yfir
krútthópum eða að draga nöfn úr hatti.

Þið eruð að gera frábæra hluti öll sömul, haldið þessari samstöðu og gleði áfram. Það er það sem
lifir áfram í hugum og hjörtum allra sem koma inn í dansfjölskylduna okkar ❤️

Fylgstu með á
instagram: dansbrynjupeturs , þar koma video og myndir!
Myndir einnig væntanlegar á facebook Like síðuna okkar: Dans Brynju Péturs.


Á mynd: Viðurkenningaafhending fyrir 3 efstu sætin í 10-12 ára hópaflokki ('Crew Choreography')


______________________________________________________

 

STREET DANS CARNIVAL Í IÐNÓ 2018
Fullt hús, standandi uppklapp - takk fyrir okkur!
"Nýr popp kúltúr viðburður á menningardagatali Reykjavíkurborgar fyrir dansáhugafólk þar sem
allt það besta í street dansi á Íslandi fer á svið.
Kraftmikil og fjölbreytt sýning."

Við þökkum styrktaraðilum okkar: Coca Cola og Adidas !

.

.

. .

______________________________________________________

Morgunblaðið 15. febrúar:



______________________________________________________


VORÖNN HEFST 15. JANÚAR


Við kennum á 8 staðsetningum í 7 hverfum hópum frá 7 ára aldri og erum aðilar að öllum frístundastyrkjum.
BREIÐHOLT - LAUGARDALUR - ÁRBÆR - KÓPAVOGUR - GARÐABÆR - GRAFARVOGUR - SELTJARNARNES

Við höldum fjölda árlegra viðburða í samstarfi við Coca Cola, Adidas og Reykjavíkurborg!







____________________________________________________________________________

2017
____________________________________________________________________________





NEMENDASÝNINGAR 25. NÓVEMBER SLÓGU ÖLL MET
Þetta var gjörsamlega tryllt! Húsið pakkfylltist tvisvar og dansararnir okkar gerðu spikfeitt show!
Takk fyrir ógleymanlegan dag! Við vorum öll sammála um að þessi dagur var sá allra besti frá byrjun!
Alltaf heldur maður að ekki sé hægt að toppa síðustu nemendasýningu... einhvernvegin tekst okkur alltaf
að toppa okkur! Það eruð ÞIÐ dansararnir okkar sem gerið okkur kleift að fljúga svona hátt! ÞIÐ ROKKIÐ!

Videoin eru komin á youtube - Ýttu hér! Myndir eru komnar á facebook - Ýttu hér!

.

ojbuyg .

.

.

______________________________________________________
______________________________________________________


STREET DANS EINVÍGIÐ 2017
Stærsta street danshátíð ársins var haldin 14. - 22. október
Takk fyrir frábæra hátíð enn og aftur, þetta er einhver skemmtilegasti tími ársins!

Við þökkum styrktaraðilum okkar: Reykjavíkurborg, Coca Cola og Adidas

Mr. Wiggles kenndi uppselda danstíma í heila 3 daga þar sem nemendur fengu að læra hjá
einum af þeim allra nafntoguðustu dönsurum í street dansheiminum. Einvígið sjálft, aðalkvöldið,
kom í fréttatíma RÚV og var einstaklega eftirminnilegt kvöld. Battlið var að þessu sinni All Styles battle
með smá twisti og sigurvegarinn var Brynjar Dagur. Frábær stemmning, mikið dansað og mikið hlegið.

Mini Einvígið var haldið í fyrsta sinn fyrir 10-14 ára dansara sem fór fram úr öllum okkar vonum, þar
sigraði Edda Guðnadóttir. TheSuperKidsClub Originalz sáu um umgjörð dagsins og dómgæslu.

Myndir frá aðalkvöldinu:


.

.

.


______________________________________________________


HAUSTÖNN 2017
Við dönsum 11. september - 8. desember

'All Star Team' kennir hjá Dans Brynju Péturs!
Við erum með reyndustu og bestu street dansara landsins um borð!
Við erum einnig með eitt fjölbreyttasta úrval dansstíla á Íslandi.

Við kennum í Breiðholti, Laugardal, Árbæ, Kópavogi, Garðabæ, Grafarvogi (nýtt!) og á Seltjarnarnesi!

______________________________________________________

NÝ MYNDBÖND
UPPHITUN FYRIR HAUSTÖNN 2017

Nýtt video! Hiphop með Twice as Nice og TheSuperKidsClub JRS + gestum!


Nýtt video! Hiphop með Twice as Nice (Beata)


Nýtt video! Framhaldstímar með Brynju


Nýtt video! Popping með Cyborgs



Nýtt video! Dancehall með Anais


Nýtt video! Hiphop með Brynju og Twice as Nice





Nýtt video! Break og Top Rock með Natöshu

______________________________________________________

SUMARFRÍ HJÁ DANS BRYNJU PÉTURS
Einstaka Drop in tímar í júlí auglýstir á samfélagsmiðlum!

Haustönn hefst 11. september

Skráning hefst 1. ágúst. Forskráning fyrir póstlista hefst 24. júlí.

Nemendur geta miðað við að stundaskrá hverfanna verði nokkurn vegin eins,
við hlökkum til að hefja dansnámið af fullum krafti í haust. Gleðilegt sumar!



______________________________________________________

TAKK FYRIR FRÁBÆRAN DAG!
Nemendasýningar Dans Brynju Péturs fóru fram 1. apríl í Íþróttahúsi Seljaskóla.

Ótrúlegur dagur, þið eruð skemmtilegust í heimi! Tryllt show og standardinn hækkaður í hvert sinn.
Takk fyrir að vera með - sjá myndir hér - sjá video hér.

.
______________________________________________________

YFIR 150 MANNS MÆTTU Á STREET DANS CARNIVAL
Á SNJÓÞYNGSTA DEGI ÍSLANDS SÍÐAN Á 4. ÁRATUGNUM

Rafmögnuð stemmning og stórkostlega vel heppnað kvöld. Takk fyrir okkur!
Styrktaraðilar viðburðarins voru COCA COLA og ADIDAS

"Nýr popp kúltúr viðburður á menningardagatali Reykjavíkurborgar þar sem þú getur
komið og séð kraftmikla danssýningu með öllum bestu street dönsurum landsins."




. .
.

______________________________________________________

VERTU MEÐ DANS BRYNJU PÉTURS 2017

Skráning á vorönn er í fullum gangi og margir hópar eru komnir með biðlista eða að fyllast


 

____________________________________________________________________________

2016
____________________________________________________________________________



TAKK FYRIR BESTA DAG Í HEIMI
Við erum að springa úr hamingju eftir tvær skemmtilegustu nemendasýningar frá byrjun!
Takk fyrir fullkominn dag elsku dansfjölskylda <3

Myndir og video eru komin á netið en við slógum aðsóknarmet enn og aftur
- það var stappað á báðum sýningunum og rafmögnuð orka einkenndi daginn!


.

______________________________________________________

STREET DANS EINVÍGIÐ 2016

Við héldum danshátíðina sjötta árið í röð 16. - 22. október!
Aðsóknarmet og uppselt á lengstu workshop vikuna til þessa


Gestakennararnir voru heimsfrægir dansarar frá New York, þær TweetBoogie og Soraya Lundy!
Þær hafa dansað með Beyoncé, Jay-Z, Rihanna, Jennifer Lopez, Shakira, Drake, Nicki Minaj ofl.

Hápunktur hátíðarinnar var battlið sjálft í Spennustöðinni þar sem hver dansarinn á fætur öðrum
kom áhorfendum á óvart og var keppnin grjóthörð í sumum flokkunum. Þar er keppt í 1 on 1 battles
fyrir 16 ára + dansara á framhaldsstigi í Hiphop, Dancehall, Popping, Waacking, Break og Top Rock.

.

.

.



______________________________________________________________






______________________________________________

Battlað í Borginni á Stöð 2
Eru ekki allir að fylgjast með Battlað í Borginni á mánudagskvöldum kl. 20.25 ?



________________________________________________


Alltaf nóg að gera hjá Dans Brynju Péturs
Dansararnir okkar hafa tekið þátt í stórum viðburðum það sem af er 2016!
Til dæmis opnun
Barnamenningarhátíðar í Hörpunni (video hér fyrir neðan), Samfestingnum og
Söngvakeppni Samfés í Laugardalshöllinni
, kynningarmyndbandi fyrir Eurovision með Páli Óskari ofl.

Ekki má gleyma þáttaröðinni 'Battlað í Borginni' sem Lóa Pind vann fyrir Stöð 2 sem frumsýnd
verður 2. maí. Þar fylgjumst við með 5 dönsurum frá Dans Brynju Péturs æfa sig fyrir battl!




________________________________________________

Metaðsókn á workshop með Tweetie frá New York


Tólfti gestakennarinn sem mætir til Íslands til að kenna í Dans Brynju Péturs
Yfir 120 manns lærðu hjá Tweetie um helgina! Hún stjórnaði þáttunum Dances From The Hood
á MTV og hefur dansað með Jay-Z, Nicki Minaj, Shakira, Ciara, Destiny's Child, Kanye West ofl.

Dans Brynju Péturs er leiðandi í dansi á Íslandi - dansskólinn sem þú átt að vera í :)

.

.


________________________________________

Vorsýningar 2016 slógu í gegn - Nemendasýningarnar aldrei stærri!
Við skiptum hópunum okkar aftur niður á tvær sýningar, dagurinn var alveg frábær.
Það er magnað hvað þetta verður bara skemmtilegra og skemmtilegra. Bestu dagar í heimi!

Sjáðu allar myndirnar hér!

.

.

.

.

________________________________________


Metaðsókn á vorönn 2016!
Við höfum aldrei séð aðra eins skráningu, því miður hafa sumir þurft að hverfa frá.
Við munum bæta úr þessu fyrir haustönn 2016. Takk fyrir áhugann! LETS DANCE!

Update: Nokkrar svipmyndir frá önninni okkar:

. . luisgruop

. hopur

Eurovision kynningarmyndbandið með Páli Óskari í samstarfi við RÚV:

. . . paloskarhopur



Dugnaðarverðlaun Adidas fyrir haustönn 2015
Þær Þórdís, Glóey og Kristín Hallbera unnu dugnaðarverðlaunin eftir síðustu önn fyrir
að vera óstöðvandi að ná sínum markmiðum í dansnáminu. Þær eru allar að dansa 5-6
sinnum í viku og eru að bæta sig hratt fyrir utan það hvað þær eru jákvæðar og hvetjandi
fyrir aðra dansara. Gott viðmót er svo mikilvægt - til hamingju stelpur!

Adidas gefur þremur nemendum frá Dans Brynju Péturs verðlaun eftir hverja einustu önn
en hver verðlaunahafi fær 40.000 kr. inneign hjá Adidas!






________________________________________


Fylgstu með á instagram og snapchat: brynjapeturs



.







Sjáðu sjálf / ur af hverju við erum í fararbroddi

Kynntu þér tvíeflda stundaskránna okkar hér á síðunni en við erum með eitt fjölbreyttasta
úrval dansstíla á Íslandi. Þú getur komið í alvöru street dans og fyllt dagskránna þína af
Hiphop,
Popping, House, Break
og Top Rock - bætt við sjóðheitum karabískum fíling í Dancehall þar sem þú
lærir mjaðmatækni sem toppar allt - og / eða komið í ekta skvísu og ‘stage performance’
tíma
sem svíkja engan, kynntu þér
Waacking og choreografíutímana ‘Heels Performance’.

Stóraukin áhersla verður á danshópa og skemmtileg verkefni tengd þeim á Vorönn 2016 -
áheyrnaprufur fyrir yngri danshóp. Nemendasýning í mars og danskeppni fyrir alla
nemendur skólans frá 7 ára aldri í febrúar.

Heimsfrægir erlendir gestakennarar
koma á hverri önn en Dans Brynju Péturs hefur flutt inn
danshöfunda Michael Jackson, Janet Jackson, Beyoncé, Jennifer Lopez ofl. Dansaðu með
Dans Brynju Péturs og vertu partur af danssamfélagi sem á sér enga hliðstæðu á Íslandi!



________________________________________


Lestu nýja grein frá Brynju: Hækkum standardinn!
Ýttu hér til að lesa greinina


________________________________________



____________________________________________________________________________

Sjá eldri fréttir
2012-2015

____________________________________________________________________________